Fjölbrautaskóli Suðurnesja leggur sig fram um að aðstoða alla nemendur við að ná árangri í námi sínu. Mikilvægt er að nemendur sem greindir er með námsörðugleika eða aðrar hamlanir í námi séu meðvitaðir um hvaða þjónusta og úrræði eru í boði. Mikilvægt er að senda greiningar eða staðfestingu til námsráðgjafa í upphafi náms til þess að hægt sé að veita þá þjónustu sem í boði er. Nemendur eru hvattir til að nota þjónustu Hljóðbókasafns Íslands séu þeir með greiningu upp á slíkt.
Mikilvægt er að hver og einn nemandi sé meðvitaður um hvaða aðferðir gagnast honum best í námi, svo sem eins og að prófa sig áfram með mismunandi liti á pappír, leturgerðir og stærð bókstafa sem og að nýta sér hljóðbækur. Ef nemendur hafa sérstakar óskir varðandi hlutapróf þá er gott að hafa samband við námsráðgjafa og þeir aðstoða með það.
Nauðsynlegt er að fylgjast vel með í kennslustundum og vera virkur þátttakandi í náminu. Í Innu birtast allar upplýsingar um námið og bera nemendur ábyrgð á því að fylgjast með daglega. Mikilvægt er að skoða kennsluáætlanir í hverju fagi fyrir sig til þess að gera sér betur grein fyrir vinnuálagi, verkefnaskilum og prófum.
Nemendur með greiningar geta sótt um eftirfarandi þjónustu í lokaprófum; að fá prófin á lituðum pappír, stærra letri eða á hljóðformi. Sækja þarf um þessa þjónustu hjá námsráðgjöfum og er umsóknarfrestur auglýstur fyrir hvert próftímabil.
Gagnlegar vefsíður