Inntökuskilyrði:
Inntökuskilyrði á raunvísindabraut eru að grunnskólaeinkunn í íslensku og stærðfræði sé að lágmarki B og að lágmarki C+ í ensku. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.
PRENTVÆN ÚTGÁFA
Námslínur:
Hér má finna nokkrar námslínur sem eru tillögur að vali áfanga miðað við hvert nemandinn stefnir að loknu stúdentsprófi.
Markmið
Markmið raunvísindabrautar er að búa nemendur undir nám í raunvísindum, heilbrigðisgreinum, verkfræði eða skyldum greinum á háskólastigi.
Að loknu námi skal nemandi m.a. hafa hæfni til að...
- nýta sér þá sérþekkingu sem hann hefur öðlast á brautinni til frekara náms eða starfa.
- nýta sér góða almenna þekkingu á sviði stærðfræði, náttúru- og raunvísinda.
- fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags.
Síðast breytt: 5. september 2022