Strax á öðru starfsári skólans var byggt ofan á húsið, í stað einnar hæðar voru þær orðnar þrjár. Það var samt allt of lítið. Skömmu síðar var byggt við endann á húsinu og fjölgaði kennslustofum þá um sex auk þess sem kennarastofa stækkaði mikið. Enn var þetta ófullnægjandi. Árið 1990 var hafist handa við byggingu þverálmu á eldra húsið. Hún var 1000 fermetrar að grunnfleti og á 3 hæðum. Varð þá heildargólfflötur hússins um 6500 fermetrar og mátti með góðum vilja segja, að húsið fullnægði brýnustu þörfum þegar þessi álma var tekin í notkun haustið 1992, en ekkert var umfram það.
Haustið 2004 var tekin í notkun enn ein álman, sem er einnig á þremur hæðum og á þriðja þúsund fermetrar að heildargólffleti. Þar kom loksins salur sem risið getur undir því nafni, svo og glæsilegt nemendamötuneyti, nýjar og mjög vandaðar kennslustofur raungreina, ný kennaraaðstaða og svo mætti lengi telja. Einnig hafa farið fram gagngerðar endurbætur á eldra húsnæðinu. Er skólinn nú hinn glæsilegasti í alla staði og er starfsaðstaða nemenda og kennara mjög góð. Haustið 2021 var tekin í notkun ný félagsaðstaða fyrir nemendur sem er 300 fermetrar að stærð. Húsnæði skólans er nú um 9300 fermetrar.
Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja voru um 250 talsins þegar skólinn hóf starfsemi sína, en síðan hefur fjöldi þeirra fjórfaldast og voru nemendur um eitt þúsund á vorönn 2006. Þessi fjölgun nemenda samsvarar nokkurn veginn 5% stöðugri aukningu á ári frá upphafi til þess árs. Reyndar var fjölgunin ekki jöfn allan tímann heldur gekk hún í stökkum. Eftir hrunið 2008 fjölgaði nemendum í framhaldsskólum á Íslandi verulega og var nemendafjöldinn í FS hátt á 12. hundrað árin 2009 og 2010, en hefur fækkað aftur og hefur síðan verið í kringum 1000.
Skólameistarar Fjölbrautaskóla Suðurnesja hafa verið eftirtaldir:
- Jón Böðvarsson 1976 - 1984
- Ingólfur S. Halldórsson vorönn 1984 (Jón var í leyfi)
- Hjálmar Árnason 1984 - 1995
- Ægir Sigurðsson 1989 - 1990 (Hjálmar var í leyfi)
- Ólafur Jón Arnbjörnsson 1995 - 2012
- Oddný G. Harðardóttir allt árið 2005 (Ólafur Jón var í leyfi)
- Kristján Ásmundsson 2008 - 2011 (Ólafur Jón var í leyfi)
- Kristján Ásmundsson 2012 -
- Guðlaug Pálsdóttir 2021 - 2022 (Kristján var í leyfi)
Heimild: Wikipedia