Út í heim með FS!

Út í heim með FS!

Fjölbrautaskóli Suðurnesja tekur um þessar mundir þátt í samstarfi við skóla á Spáni og í Ungverjalandi. Nú leitum við eftir nemendum sem myndu vilja taka þátt í skólaheimsókn til samstarfsskólanna.

Markmið verkefnisins:

  • auka alþjóðlega samvinnu nemenda
  • auka skilning á menningu annarra þjóða
  • auka enskukunnáttu
  • þjálfa gagnrýna hugsun

Við auglýsum eftir þátttakendum í eftirfarandi ferðir:

  • Til Spánar í nóvember 2023
  • Til Ungverjalands á vorönn 2024 (dags. tilkynnt síðar)

 

Nemendur þurfa ekki að greiða fyrir ferðirnar. Gist verður hjá fjölskyldum nemenda í þeim skólum sem við heimsækjum.

 

Skilyrði fyrir þátttöku:

  • Þátttakendur þurfa að búa til myndbönd skv. Leiðbeiningum
  • Taka þátt í dagskrá þegar nemendur koma til Íslands
  • Vinna létt verkefni áður en farið er út og meðan á ferðinni stendur
  • Nemendur skuldbinda sig til að taka á móti erlendum nema í gistingu heima þegar þeir koma í heimsókn til Íslands (haustönn 2024)

 

Hámarksfjöldi nemenda í hverja ferð eru sex og er áætlað að hver nemandi fari í eina ferð. Hverri ferð fylgir undirbúningsvinna og úrvinnsla eftir á og er þessi vinna metin til einnar einingar. Þátttaka er nemendum að kostnaðarlausu en til þess að halda kostnaði í lágmarki munu nemendur gista heima hjá nemendum í þeim löndum sem heimsótt verða. Nemendur sjá þó sjálfir um vasapening

Við óskum eftir umsóknum um þátttöku. Ef þú hefur áhuga á því að taka þátt þá þarftu að skrifa umsóknarbréf þar sem þú tekur fram hvers vegna þú hefur áhuga og af hverju við ættum að velja þig. Bréfið sendir þú síðan á Kristjönu Hrönn: kristjana.arnadottir@fss.is í síðasta lagi miðvikudaginn 18. október.