Ninna og Rey Mist unnu hæfileikakeppnina

Hæfileikakeppni starfsbrautar fór fram í fyrirlestrarsalnum í dag. Keppendur voru Ninna Surada Thirataya Gyðudóttir, Regína Krista Eyjólfsdóttir og Rey Mist Sólmunds sem buðu reyndar upp á fjögur atriði. Kynnir var Kristófer Hlíðdal Ívarsson og þrír valinkunnir starfsmenn skólans skipuðu dómnefndina. Góð stemning var í salnum og keppendur stóðu sig allir frábærlega. Það voru Ninna og Rey Mist sem fóru með sigur af hólmi og verða fulltrúar skólans í hæfileikakeppni starfsbrauta framhaldsskóla sem fer fram 18. apríl.