Kynningarfundur fyrir foreldra 29. ágúst

Kynningarfundur fyrir foreldra verður á sal skólans  fimmtudaginn 29. ágúst kl. 18:00. Þar verður vefur skólans og skólakerfið Inna kynnt, forsvarsmenn nemendafélagsins NFS kynna starfsemi félagsins og þá verður erindi frá foreldrafélagi FS. Foreldrar/forráðamenn nýnema eru sérstaklega boðin velkomin en á fundinum geta þau m.a. rætt við umsjónarkennara barna sinna auk skólastjórnenda, námsráðgjafa og félagsráðgjafa. Fundinum verður streymt hér á YouTube-rás skólans.