Frá kynningarfundi fyrir foreldra nýnema

Fimmtudaginn 29. ágúst var kynningarfundur fyrir foreldra nýnema á sal skólans. Fundurinn var haldinn á sal skólans og var einnig streymt á YouTube.

Kristján Ásmundsson skólameistari setti fundinn og bauð gesti velkomna. Elín Rut Ólafsdóttir áfangastjóri sagði frá vef skólans, Rósa Guðmundsdóttir námstjóri kynnti skólakerfið Innu og Bruno Birins matreiðslumaður sagði frá mötuneyti skólans. Stjórn nemendafélagsins NSF kynnti starfsemi félagsins og sagði frá því helsta sem verður á dagskrá í vetur. Guðný Birna Guðmundsdóttir og Arna Björg Rúnarsdóttir sögðu frá Foreldrafélagi FS og hvöttu foreldra nýnema til að taka þátt. Foreldrafélagið hefur stutt starfsemi nemendafélagsins á margvíslegan hátt og þær stöllur notuðu tækifærið og afhentu stjórn NFS Soundboks hátalara að gjöf frá foreldrafélaginu.

Að dagskránni lokinni gafst gestum tækifæri til að ræða við umsjónarkennara barna sinna, skólastjórnendur, námsráðgjafa og félagsráðgjafa skólans.

Athugið að enn er hægt að horfa á upptöku af fundinum á YouTube-rás skólans en á fundinum komu fram margvíslegar gagnlegar upplýsingar fyrir foreldra.

Í myndasafninu eru nokkrar myndir frá foreldrafundinum.