Áfangakynning á sal

Miðvikudaginn 5. febrúar var kynning á valáföngum sem verða í boði á haustönn. Þar kynntu kennarar í ýmsum námsgreinum þá valáfanga sem nemendur geta tekið á næstu önn. Þar má nefna áfanga í tungumálum, raungreinum, listgreinum og samfélagsgreinum og einnig Fab Lab, útivist o.fl. Nemendur voru duglegir að spyrja og ræða við kennara. Nemendur hafa örugglega fundið spennandi valáfanga til að velja á næstu önn og ekki síður áfanga sem henta sem undirbúningur fyrir frekara nám.

Þetta er í annað sinn sem boðið er upp á kynningu á valáföngum á sal og er þetta gott tækifæri fyrir nemendur að kynna sér þá fjölbreyttu valáfanga sem eru í boði. Valáfangarnir eru svo líka kynntir á veggjum og auglýsingaskjám á meðan valið stendur yfir.

Í myndasafninu eru nokkrar myndir frá valkynningunni.