VOHR3VF10 - Vöðva- og hreyfifræði 2
Undanfari : VOHR2VF05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í áfanganum er farið í að tengja vöðvafræðina við líkamsbeitingu í styrktar- og liðleikaþjálfun. Farið er í hugtök lífaflsfræðinnar og þau tengd við beitingu líkamans. Kenndar verða æfingar og skoðað hvaða vöðvahópar vinna saman. Einnig verður farið í hvernig einangra má vöðvahópa með tæknilegri útfærslu æfinganna og hvernig greina má æskilega sem og óæskilega líkamsbeitingu við styrktar- og liðleikaþjálfun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvaða æfingar ákveðnir vöðvahópar framkalla
- takmörkunum á einangrun stakra vöðva og vöðvahópa
- heiti helstu hreyfinga í samræmi við vöðvafræðina
- mikilvægi réttrar líkamsbeitingar við þjálfun
- grunnhugtökum lífaflsfræðinnar
- þekkja mismunandi erfiðleikastig í æfingum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- framkvæma æfingar á æskilegan hátt
- miðla þekkingu sinni á æfingum til skjólstæðinga
- nota viðeigandi búnað við æfingar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra fyrir skjólstæðingi tæknilegar útfærslur æfinga
- breyta líkamsstöðu og/eða stillingu áhalda til að hafa áhrif á útkomu æfinga og hámarka árangur
- gera sér grein fyrir æskilegum útfærslum æfinga og leiðrétta óæskilega líkamsbeitingu
- útskýra hvaða vöðvahópar framkalla ákveðnar æfingar
- geta miðlað mismunandi erfiðleikastigum æfinga