VINN3ÖH08 - Verknám á hjúkrunaheimili eða öldrunarlækningadeild
Undanfari : VINN2LS08
Í boði
: Haust
Lýsing
Vinnustaðanámið/verknámið fer fram á lyflækningadeildum og legudeildum. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandinn skal skipuleggja hjúkrunarstörf sín í samvinnu við leiðbeinanda og geta yfirfært bóklega þekkingu á hjúkrunarviðfangsefni sem hann vinnur við á deildinni. Nemandinn skal fá þjálfun í því að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og forgangsraða verkefnum sínum með þarfir skjólstæðinga að leiðarljósi. Nemandinn fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða. Í upphafi tímabils setur nemandinn sér persónuleg og fagleg markmið um verknámið. Á meðan á verknámi stendur skal nemandinn fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi heildrænnar hjúkrunar
- helstu þáttum sem hafa áhrif á heilsu og lífsgæði skjólstæðinga
- helstu hjálpartækjum sem notuð eru í hjúkrunarstörfum
- faglegri umhyggju og samskiptum í hjúkrunarstörfum
- mikilvægi eftirlits og mats á líkamlegu og andlegu ástandi skjólstæðinga
- mælitækjum og öðrum hjúkrunargögnum sem notuð eru
- sjálfsákvörðunarrétti og réttindum sjúklinga samkvæmt lögum
- mikilvægi forgangsröðunar í hjúkrunarstörfum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- sýna skjólstæðingum og aðstandendum virðingu og faglega umhyggju
- nota helstu hjálpartæki og hjúkrunargögn á viðeigandi hátt
- taka þátt í þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta
- sýna frumkvæði og forgangsraða eigin störfum
- skrá og vinna samkvæmt hjúkrunarferli
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja viðeigandi hjúkrunarmeðferð hverju sinni og geta rökstutt hana
- virða og rökstyðja mikilvægi þagnarskyldu og mikilvægi trúnaðar
- sýna hæfni í samskiptum og samstarfi við skjólstæðinga, aðstandendur þeirra og samstarfsfólk
- leggja sitt að mörkum í þverfaglegri samvinnu
- hjúkra sjúklingum við margbreytilegar aðstæður
- útskýra mikilvægi þagnarskyldu og réttindi sjúklinga