VGRT1GN04 - Verktækni grunnnáms
Undanfari : Enginn
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur kynnast viðfangsefnum og fagsviði húsasmiða, húsgagnasmiða, málara, múrara, pípulagningamanna og dúklagningamanna og veggfóðrara með hagnýtum verkefnum. Lögð er áhersla á notkun hand- og rafmagnshandverkfæra og eftir atvikum algengustu véla og búnaðar, umhirðu þeirra, notkunarsvið og öryggismál. Nemendur læra jafnframt að vinna skipulega eftir leiðbeiningum og teikningum, gera einfalda efnis- og aðgerðalista og halda vinnuumhverfi hreinu og öruggu. Áfanginn er að mestu verklegur og byggist kennslan á fjölbreyttum verkefnum og styttri kynningum þar sem nemandinn tileinkar sér rétt vinnubrögð og gæðavitund.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- starfssviði einstakra fagstétta innan bygginga- og mannvirkjagrein
- sérstöðu og skörun verkþátta milli einstakra faggreina
- algengustu faghugtökum sem notuð eru innan hverrar fagstéttar
- mikilvægi fagmennsku og góðs handverks innan atvinnugreinarinnar
- algengustu handverkfærum og tækhum sem notuð eru innan hverrar fagstéttar
- algengustu handmælitækjum og rissverkfærum í atvinnugreininni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með algengustu handverkfæri og tæki
- gera einfalda efnis- og aðgerðalista eftir teikningum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita markvissum verkundirbúningi og haldið góðu skipulagi á verkstað
- fylgja öryggisleiðbeiningum fyrir einstök áhöld og tæki
- velja heppileg verkfæri með hliðsjón af verkefni hverju sinni
- halda vinnustað hreinum og gengið frá áhöldum og tækjum eftir notkun