VÉLS3VB04(EV) - Vélstjórn 5

Undanfari : ?Óákveðið
Í boði : Haust

Lýsing

Nemendur fá heildaryfirsýn yfir skipulag vélarúms, m.a. vélastaðsetningar og lagnafyrirkomulag. Þeir öðlast með hjálp fjölbreyttra gagna djúpa þekkingu á uppbyggingu einstakra vélarhluta og hlutverki þeirra. Stefnt er að því að nemendur geti metið ástand vélarhluta með mælingum og slitmörk út frá gögnum framleiðenda og öðrum upplýsingum. Í áfanganum er fjallað um ræsiloft og loft fyrir vinnuvélar og stýritæki, einstaka þætti loftkerfa, afgaskerfi, skólp- og sorakerfi, sjókerfi og ferskvatnskerfi til almennra nota. Fjallað er um legur, þ.m.t. hvítmálmslegur, uppbyggingu og gerð þeirra og notkunarsvið ásamt því að fjalla um krafta í bulluvélum, um sveiflumyndun í vélum og vélakerfum, um eigin tíðni véla, um gerð og hlutverk dempara og eftirlit með þeim, um byggingu meðalhraðgengra og hraðgengra dísilvéla og ýmis rekstraratriði varðandi svartolíubrennslu og gangtruflanir. Í verklegum þætti áfangans er áhersla lögð á keyrslu vélarúms ásamt ritmyndatöku og viðbrögð við gangtruflunum þjálfuð í vélarúmshermi. Fjallað er um skilvindur, viðhald þeirra og rekstur, þrýstivökvakerfi og vökvagíra, svo og Pt-eldsneytiskerfi og afgasvaka. Nemendur gera áætlun um viðgerðir og leggja mat á ástand búnaðarins að viðgerð lokinni. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu ræsiloftskerfis og öllum hlutum þess, þar á meðal tveggja þrepa loftþjöppu, ræsilofthylki með lokum og öðrum búnaði sem tilheyrir slíku kerfi
  • mismunandi loftræsibúnaði dísilvéla
  • uppbyggingu afgaskerfis
  • uppbyggingu skólp- og sorakerfis
  • helstu gerðum lega, uppbyggingu þeirra og notkunarsviði
  • innri sveiflum í vélum og vélakerfum, eigintíðni véla og hvernig megi draga úr óæskilegum sveiflum
  • hlutverki dempara, helstu gerðum þeirra og eftirliti með ástandi þeirra
  • uppbyggingu loftræstikerfis
  • mismunandi gerðum lega til mismunandi nota
  • aðferðum varðandi þurrkun lofts fyrir stýrikerfi og loftræstikerfi fyrir vélarúm og lestar
  • mismunandi gerðum afgaskatla og öryggisbúnaði sem tengist þeim
  • mismunandi tegundum eldsneytisolíu og smurolíu, eiginleikum þeirra og annmörkum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • útskýra fyrirkomulagsteikningar í vélarúmi og rörateikningar mismunandi kerfa
  • rekja og lýsa fráveitukerfum í skipum, þ.e. skólpkerfum og lögnum, og kerfum til söfnunar, geymslu og losunar á sora og austri
  • útskýra grunnbyggingu nútíma meðalgengra dísilvéla


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • stjórna vélbúnaði og vélakerfum í stærri skipum
  • gera tillögur um val á vélbúnaði og íhlutum sem best henta við tilteknar aðstæður, t.d. með tilliti til álags, snúningshraða og endingar
  • gera tillögur um viðhald og leggja mat á árangur af viðgerðum