VÉLS3VB04(DV) - Vélstjórn 4

Undanfari : STIL3VB05 og VÉLS2VB04
Í boði : Haust

Lýsing

Nemendur þjálfast í keyrslu vélarúms og vélbúnaðar. Með vélhermum kynnast nemendur daglegum rekstri vélarúms, frá köldu skipi til fullrar aflnotkunar. Viðbrögð við bilunum eru þjálfuð. Nemendur ræsa allan búnað vélarúmsins og reka hann með hjálp viðvörunarkerfa hermisins í tilgreindan tíma. Þeir bregðast við gangtruflunum, greina bilanir og koma búnaðinum í rétt horf. Nemendur öðlast hagnýta verklega þjálfun við stjórn á brunavél ásamt viðeigandi stoðkerfum í vélhermi. Þeir annast allan daglegan rekstur vélarúms frá stjórnstöð, sinna bilanagreiningu og nýta sér upplýsingar frá framleiðendum, afgasvaka og viðvörunarkerfi til að tryggja öruggan rekstur vélarúmsins. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • stjórntækjum vélarúmshermis
  • daglegum rekstri vélarúms og hjálparbúnaðar
  • virkni og uppbyggingu véla og vélbúnaðar, svo sem stýrisvéla, sjó- og ferkvatnsdælna, ferskvatnseimis og rafmagnsframleiðslu
  • hvernig véladagbók er færð og notuð
  • hvernig skipt er yfir á brúarstjórn og samskiptum milli brúar og vélarúms á að vera háttað


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • ræsa og stöðva einstök tæki vélarúmsins og stoðkerfa þess í vélarúmshermi á þann hátt að tækjum og búnaði verði ekki misboðið
  • forgangsraða vinnu í vélarúmi á eðlilegan hátt
  • tímasetja verk miðað við aðstæður
  • afla upplýsinga um ástand vélbúnaðar og stoðkerfa
  • vinna með öðrum stjórnendum að viðbrögðum og hættum sem upp geta komið varðandi búnað og öryggi skips


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • standa vaktir í vélarúmi og bregðast við bilunum og áreiti varðandi búnað
  • taka ákvarðanir um stjórntök eða viðbrögð við óeðlilegu ástandi vélbúnaðar eða stoðkerfa og gera viðeigandi ráðstafanir
  • nota kerfismyndir og handbækur sem hjálparbúnað við bilanagreiningu og viðbrögð við bilunum
  • vinna sjálfstætt og taka frumkvæði sem vélstjóri