VÉLS2VB04(CV) - Vélstjórn 3

Undanfari : VÉLF1VA04 og VÉLS2VA04
Í boði : Haust

Lýsing

Nemendur læra hvernig nota má teikningar, tæknilegar upplýsingar og vélherma til að öðlast víðtæka þekkingu á uppbyggingu einstakra vélarhluta og kerfa. Þeir kynnast eldsneytisolíum og kerfum, smurolíum og smurolíukerfum, krosshausvélum og langbulluvélum með tilliti til brennslu svartolíu og einnig notkun á mismunandi smurolíum. Nýting glatvarma frá vélum með varmaskiptum og afgaskötlum er kynnt. Nemendur öðlast þekkingu á tæringarvörnum ferskvatns- og sjókerfa um borð í skipum ásamt því að kynnast helstu gerðum skilvinda og læra um skilvindukerfi. Fjallað er um austurs- og kjölfestukerfi og þær reglur sem um þau gilda (MARPOL). 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • nútímaeldsneytiskerfum sem hönnuð eru fyrir gasolíu- og svartolíu-meðhöndlun
  • tilgangi hvers einstaks þáttar í kerfunum
  • helstu eiginleikum eldsneytisolíu af mismunandi flokkum og grundvallaratriðum um skiljun
  • smurolíukerfi og tilgangi hvers einstaks þáttar í kerfinu
  • eiginleikum smurolíu af mismunandi flokkum og meðferð hennar við daglegan rekstur véla
  • kælivatns- og sjókælikerfum og tilgangi hvers einstaks þáttar í kerfunum
  • helstu eiginleikum fersk- og saltvatns til kælingar og meðhöndlun þess við daglegan rekstur véla
  • helstu orsökum og skilyrðum tæringar í skipum og vélakerfum ásamt þeim aðgerðum sem beitt er til varnar tæringu
  • gerð og uppbyggingu krosshausvéla
  • ritmyndum og notkun þeirra til að meta þjöppun, innsprautunartíma eldsneytis og bruna


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota teikningar og leiðbeiningabæklinga til að átta sig á uppbyggingu vélahluta og búnaðar og hvernig þeir vinna
  • útskýra tilgang einstakra þátta í eldsneytiskerfum með aðstoð teikninga
  • rekja og átta sig á samhengi kerfa í vélarúmi
  • teikna upp kerfi á staðlaðan hátt
  • vinna með skjámyndir og skjáskipanir í vélarúmi


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • annast rekstur skilvindukerfa í eldsneytis- og smurolíukerfum
  • annast rekstur aðal- og ljósavéla í minni skipum og sinna öllu fyrirbyggjandi viðhaldi á þeim
  • mæla og meta ástand kælivatns m.t.t. tæringar