VÉLS1VA04(AV) - Vélstjórn 1
Undanfari : ?Óákveðið
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum öðlast nemendur þekkingu á uppbyggingu og virkni mismunandi vélagerða þar sem áhersla er lögð á uppbyggingu, eiginleika og notkun bulluvéla. Einnig er farið yfir íhluti og einingar sem brunavél er gerð úr og hlutverk þeirra. Þá er fjallað um véla- og lagnakerfi sem þjóna brunavélum. Nemendur þjálfast í notkun véla og vélakerfa, bæði í verklegri þjálfun og í vélhermi. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að þjóna og stjórna vélbúnaði í minni skipum. Farið er yfir öryggismál, umgengni um vélar, ásamt hættum sem stafa af vélum og vélbúnaði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vinnuhring tví- og fjórgengisvéla
- flokkun aflvéla eftir gerð, uppbyggingu og eldsneyti
- grundvallarhugmyndum að baki bulluvélinni, byggingu hennar og helstu íhlutum
- mismunandi uppbyggingu, notkun og eiginleikum hraðgengra og hæggengra bulluvéla
- mismunandi aðstreymi eldsneytis og lofts í dísilvél
- þeim kerfum sem þjóna vélum skipa, hlutverki þeirra og uppbyggingu í minni skipum
- kæliþörf brunavéla
- olíukerfi skipa og einstökum þáttum, frá daghylki að eldsneytisloka
- uppbyggingu á eldsneytisdælum og vinnumáta þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nafngreina helstu íhluti vélar og lýsa hlutverki þeirra
- lesa úr vélateikningum
- nota viðeigandi handverkfæri á réttan hátt
- ganga um vélar með tilliti til hreinlætis og öryggis
- búa til gátlista og undirbúa tvígengis- og fjórgengisskipsvélar fyrir gangsetningu og gangsetja þær
- ganga frá vél og vélarúmi eftir stöðvun og gera vélarúm frostklárt
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- teikna upp vinnuhring tvígengis- og fjórgengisvéla og lýsa ferlinu
- rekja og teikna upp helstu vélakerfi
- stunda vinnu í vélarúmi skipa m.t.t. umgengni og öryggismála
- undirbúa dísilvél fyrir ræsingu og ræsa hana
- greina kerfisbundið bilanir í vél skips og bregðast við þeim á viðeigandi hátt
- lýsa virkni vélkerfa og samspili þeirra í keyrslu véla