VÉLF2VB04(BV) - Vélfræði 2
Undanfari : EÐLI2AF05, VÉLF1VA04(AV) og VÉLS2VA04(BV)
Í boði
: Haust
Lýsing
Í þessum áfanga læra nemendur hvernig orkan í eldsneytinu breytist m.a. í hreyfiorku og varmaorku og hvernig hún nýtist til að knýja skipið áfram. Farið verður í reykgreiningu afgass og orkutap. Þeir læra um grunnþætti gufukatla, notkun eimtafla og eimframleiðslu. Nemendur læra að útleiða formúlur sem koma fyrir í námsefninu, útskýra gildi breytnanna í formúlunum og beita þeim á viðeigandi hátt við lausn verkefna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Sankey línuritinu, hlutverki þess og notkun
- umbreytingu á orku við notkun brunavéla og varmajöfnuði
- nýtingu orku í brunavélum og nýtingu orku við að knýja skip áfram
- sveigju skipsskrúfu, skrikun hennar, skrúfulínuriti, afkastalínuriti
- neðra og efra varmagildi olíu og aðferðum við mælingu varmagildis
- fullkomnum bruna og orsökum ófullkomins bruna
- eldsneytisnotkun bulluvéla og orkudreifingu
- fræðilegri loftþörf, loftaukatölu og raunverulegri loftþörf brunavéla og katla
- notkun eims við aflfærslu, notkun á eimtöflum, myndunarvarma og nýtni katla
- mismun á vatnsrörakatli og reykrörakatli
- aflþörf dælukerfa (dælna)
- kennilínu miðflóttaaflsdælu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera grein fyrir fjölbreyttum vélfræðilegum viðfangsefnum með notkun stærðfræði
- nota mismunandi vélfræðilegar mælieiningar við útreikninga
- reikna út aflþörf, orkunýtingu og varmajöfnuð véla
- gera grein fyrir notkun eims við aflyfirfærslu
- útskýra hugtök eins og myndunarvarma og nýtni katla
- nota eimtöflur og varmaflæðilínurit
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útleiða formúlur sem fyrir koma í námsefninu, útskýra gildi breytanna í formúlunni og beita þeim við lausn verkefna
- gera tillögur varðandi val á vélum, kötlum og ýmsum vélbúnaði skipa
- skýra neðra og efra varmagildi olíu og aðferðir við mælingu varmagildis
- leggja mat á gögn varðandi bruna eldsneytis, svo sem fullkominn bruna og ófullkominn bruna
- skýra eldsneytisnotkun bulluvéla og orkudreifingu
- nýta kennilínur og aflþörf dælna við val á búnaði