VÉLF1VA04(AV) - Vélfræði 1

Undanfari : STÆR2AH05 og VÉLS1VA04(AV)
Í boði : Haust

Lýsing

Nemendur öðlast fræðilega og hagnýta grunnþekkingu í vélfræði. Fjallað er um mismunandi form orku, afls og orkunýtingu. Lögmál varmafræðinnar um óforgengileika orkunnar eru kynnt ásamt SI-mælieiningakerfinu. Fjallað er um eldsneytisnotkun bulluvéla og orkuforða og um nýtni bulluvéla, pV-línurit og pt-línurit og samhengi þrýstings og hitastigs. Meðalþrýstingur (pmi) fundinn í pV-línuriti með lóðlínuaðferð, framleitt afl dísilvéla reiknað. Nemendur kynnast aflmælingum véla og reikna nýtni þeirra. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þáttum sem hafa áhrif á aflframleiðslu véla
  • orkunýtingu og eldsneytisnotkun bulluvéla og samhengi aflframleiðslu og byggingar þeirra
  • aðferðum við mælingar á meðalþrýstingi
  • áhrifum mismunandi álags á form pV-línurits
  • lögmáli varmafræðinnar um varðveislu orkunnar
  • þjöppunarhlutfalli og rúmmálsmælingum á vélum
  • samhengi aflframleiðslu og álags og hvernig breytilegt álag hefur áhrif á virkni vélar
  • ásafli og aflmælingu véla með mismunandi hemlum
  • hugtökum vélfræðinnar svo sem vinnu, afli og orku
  • þróun véla og SI-mælikerfinu


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna út eldsneytisnotkun og aflframleiðslu meðalhraðgengra dísilvéla
  • útskýra algengar tegundir ritmynda og mæla þær með flatarmæli
  • útskýra samhengi þrýstings og hitastigs og geta reiknað út þjöppunarhlutfall
  • útskýra helstu einkenni eldsneytisolíu og gera grein fyrir vinnslu og eiginleikum eldsneytis brunavéla
  • meta ástand véla út frá ritmyndum meðalþrýstingi


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • útleiða formúlur sem notaðar eru í námsefninu
  • skilja áhrif breyta í vélareikningi og geta beitt þeim við lausn verkefna í ýmsum verklegum áföngum, t.d. við bilanagreiningu og í daglegum störfum vélstjóra
  • leggja mat á ástand dísilvélar, innsprautun eldsneytis og bruna í dísilvélum
  • nota handbækur og fræðibækur í vélfræði við úrlausn tæknilegra vandamála varðandi dísilvélar