UMHV2SA04(AS) - Umhverfisfræði - Vélstjórn

Undanfari : ?Óákveðið
Í boði : Haust

Lýsing

Almennt verður fjallað um mengun lofthjúps og áhrif hennar á veðurfar og hafstrauma en einnig áhrif mengunar á lífríki sjávar. Jafnframt er fjallað um þær hættur sem lífríki sjávar stafar af mengun frá skipum og þau lög og reglur sem þar um gilda um mengunarvarnir ásamt því að fjalla um einstök mengunaratvik, orsakir þeirra og viðbrögð. Áfanginn veitir fræðslu um utanaðkomandi ógnir við lífríki sjávar, þau áhrif sem útgerð skipa hefur eða getur haft á umhverfisþætti og þær reglur sem settar hafa verið í þeim tilgangi að draga úr þeim áhrifum. Nemendur kynnast þeim þáttum sem stuðla að eða geta valdið mengun eða breytingum á umhverfisþáttum og þeim afleiðingum sem þær breytingar kunna að hafa á lífríki sjávar. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu umhverfismálum sem eru í starfsumhverfi vélstjóra
  • fjölbreyttum leiðum einstaklingsins til vistvænni lifnaðarhátta
  • áhrifum mannsins á umhverfi sitt, orsökum og afleiðingum og ábyrgð einstaklingsins
  • lög og reglur um umgang við hafið


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • afla sér upplýsinga um umhverfismál
  • kunna að sér nýta fjölbreyttar heimildir


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • mynda sér skoðanir í umhverfismálum og geti rökstutt þær
  • geta útskýrt áhrif mannlegrar breytni á nærumhverfið