UMHV1NU05 - Umhverfisfræði - Kynning á umhverfisfræði
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Áfanginn byggist að verulegu leyti á verkefnavinnu í kennslustundum þar sem nemendur vinna verkefni sín undir leiðsögn kennara. Námið fer fram bæði innan og utan skólans og sækja nemendur sér fróðleik og gögn á fjölbreytta vegu. Virk þátttaka nemenda í eigin námi liggur til grundvallar og því er mikið lagt upp úr að auka áhuga þeirra á umhverfi sínu og náminu almennt. Einkunnarorð áfangans eru samvinna og ábyrgð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökum eins og sjálfbærni, auðlindir, landnýting, vistfræði
- áhrifum mannsins á náttúruna og eigin ábyrgð
- samspil manns og umhverfis
- viðfangsefnum sem eru áberandi í þjóðfélagsumræðu á hverjum tíma í tengslum við markmið áfangans
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla sér upplýsinga um umhverfi sitt
- kynna málefni úr fréttum eða fjölmiðlum sem tengjast umhverfismálum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta upplýsingar og vinna með þær á gagnrýnan hátt þannig að þær skili honum þekkingu og aukinni hæfni til náms í umhverfisfræði
- geta gert sér grein fyrir sjónarmiðum sínum og skoðunum, geti skipst á skoðunum við aðra og útskýrt hugmyndir sínar fyrir samnemendum
- draga skynsamlegar ályktanir um ábyrgð sína í tengslum við umhverfis- og náttúruvernd og hve mikilvægt framlag hvers einstaklings er
- greina stöðu sína í umhverfinu sem hann lifir í, bæði samfélaginu og náttúrulegu umhverfi
- skilja mikilvægi þess að jafnrétti ríki í verkefnavinnu og umræðum