TNTÆ1GA03 - Tölvu- og nettækni 1

Undanfari : Enginn
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum kynnist nemandinn samsetningu einkatölvu. Farið er í byggingarhluta tölvu og hlutverk þeirra. Gengið er frá uppsetningu á stýrikerfi og notendahugbúnaði fyrir tölvu. Áfanginn er einnig kynning á stafrænni tækni og beitingu hennar við tæknileg úrvinnsluefni. Nemendur kynnast rökhugtökum, mismunandi talnakerfum, Boole-framsetningu og teiknistöðlum. Reikniaðferðir rökrása eru kynntar og kóðar. Nemendur læra að nota sannleikstöflur og bólskar-jöfnur til að skilgreina virkni rökrása.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu byggingarhlutum tölvu og helsta hlutverki þeirra
  • helstu stýrikerfium og geti sett þau upp
  • helstu notendaforritum
  • helstu hugtökum stafrænnar tækni
  • talnakerfum sem notuð eru í stafrænni tækni
  • helstu reikniaðferðum rökrása
  • Bólskum-jöfnum sem skilgreina virkni rökrása


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja saman tölvu úr byggingarhlutum sínum
  • forsníða harðan disk
  • setja upp stýriforrit
  • skilgreina virkni einfaldra rökrása


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bera kennsl á helstu bilanaeinkenni í tölvu
  • leggja mat á gildi hinna ýmsu hugtaka við mat á afkastagetu tölvu
  • lesa virkni einfaldra rökrása
  • hanna rökrás út frá skilyrtri virkni
  • skilja einfaldar rökrásir