ÞÝSK2RÞ05 - Þýska - Þýska 4
Undanfari : ÞÝSK1ÞT05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Nemendur eru þjálfaðir í hlustun, lestri, tali og ritun. Áhersla er lögð á notkun tungumálsins, bæði munnlega og skriflega, í raunaðstæðum sem mætir hæfniviðmiðum þrepsins. Unnið er með efni af ýmsu tagi og á mismunandi þyngdarstigi, s.s. texta og hlustunar- og myndefni. Ýmis þemaverkefni eru unnin út frá raunefni sem tengjast listum, sögu, menningu og þjóðfélagi samtímans á viðkomandi málsvæðum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ýmsum sérhæfðum þáttum í menningu og þjóðfélagi þýskumælandi málsvæða
- sérhæfðari þáttum þýsks málkerfis
- þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að skilja efni áfangans
- notkun þýsku til að mæta hæfniviðmiðum áfangans bæði munnlega og skriflega
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja nokkuð vel þegar rætt er um málefni daglegs lífs eða málefni sem hann þekkir til
- greina aðalatriði í frásögn, þ.m.t. í fjölmiðlum og á netinu, sem fjalla um afmörkuð málefni
- skilja sértæk orð og orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talmál
- skilja og túlka einfalda eða einfaldaða bókmenntatexta
- skilja stuttar greinar, t.d. í tímaritum, dagblöðum og á netinu, um ýmis efni með hjálp orðabóka og uppsláttarrita
- skima og skilja aðalatriði í nokkuð þungum textum sem tengjast þemum áfangans
- taka þátt í samræðum um afmörkuð, undirbúin efni og beita málfari við hæfi hverju sinni
- halda stutta og hnitmiðaða kynningu um efni sem hann hefur undirbúið fyrirfram
- skrifa texta af fjölbreyttu tagi sem tengjast viðfangsefnum áfangans
- skrifa útdrátt eða eigin hugleiðingu út frá frásögn í m.a. greinum og bókmenntatextum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja aðalatriði í daglegu máli, svo sem samræður og fjölmiðlaefni
- tileinka sér efni ritaðra texta af ýmsu tagi og hagnýta á mismunandi hátt
- lesa og túlka skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá sig munnlega og skriflega um efni hans
- ræða við aðra af nokkru öryggi um efni sem hann þekkir vel til
- taka þátt í einföldum skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu
- skrifa læsilegan texta um sérvalið efni
- nýta á markvissan hátt upplýsingatækni og ýmis hjálpargögn við textasmíði