ÞÝSK1ÞO05 - Þýska - Þýska 1

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur eru þjálfaðir í réttum framburði, lestri, hlustun, tali og ritun. Einföld málfræðiatriði eru kynnt og útskýrð. Áhersla lögð á uppbyggingu orðaforða og viðeigandi málsnið. Umfjöllun um Þýskaland, þýska menningu og þýskumælandi málsvæði. Efni á netinu kynnt og ýmiskonar annað ítarefni, s.s. tónlist og myndefni

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem þarf til að geta lesið, hlustað á, skilið og rætt um einföldustu atriði
  • helstu grundvallarþáttum þýsks málkerfis, s.s. framburði, tónfalli og einfaldri setningaskipan
  • Þýskalandi og þýskum málsvæðum ásamt einstökum þáttum þýskrar menningar
  • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
  • geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið kveðjur og kurteisisávörp
  • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengjast nemandanum, fjölskyldu, umhverfi og áhugamálum og daglegu lífi
  • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og beita málsniði við hæfi
  • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu, umhverfi og áhugamálum
  • geta ritað stutta, einfalda texta í nútíð

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja talað mál um kunnuglegt efni ef talað er hægt og skýrt
  • taka þátt í einföldum samræðum og nota viðeigandi málsnið
  • kynna sjálfan sig á einfaldan hátt
  • rita stutta, einfalda texta um kunnuglegt efni