TEIK3PL04 - Teikningar og verklýsingar í pípulögnum 3

Undanfari : TEIK2PL04
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum öðlast nemendur þekkingu og færni í að lesa og teikna uppdrætti af sérhæfðum lagnakerfum eins og snjóbræðslu-, gas- og vatnsúðakerfum, kæliröftum m.m. Jafnframt er farið yfir teiknitákn og teiknireglur fyrir stýringar og tæknibúnað lagnakerfa og komið inn á reyndaruppdrætti m.a. vegna endurlagna og viðgerða. Lögð er áhersla á gerð notkunarleiðbeininga fyrir lagnakerfi og komið inn á gæðamál, staðla og verklýsingar. Nemendur læra um notkun tölvutækni við gerð og miðlun lagnauppdrátta og annarra hönnunargagna. Kennslan byggist aðallega á verkefnavinnu nemenda og lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • sérhæfðum lagnakerfum og tæknibúnaði lagnakerfa
  • ákvæðum byggingareglugerðar sem eiga við um sérhæfð lagnakerfi
  • reglum Brunamálastofnunar og Vinnueftirlitsins um gaslagnir
  • stöðlum um mannvirkja- og tækniteikningar sem tengjast lagnabúnaði
  • tæknilegum útfærslum einstakra sérhæfðra lagnakerfa
  • uppdráttum og teiknitáknum fyrir sérhæfð lagnakerfi og tæknibúnað
  • fagheitum og efnisnotkun í lagnateikningum fyrir sérhæfð lagnakerfi


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita reglum um endurlagnir og viðgerðir á lagnakerfum
  • nota Rb-blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga
  • lesa og vinna með teikningar af sérhæfðum lagnakerfum, stýringum og tæknibúnaði
  • lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingar


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nota algengustu teikniforrit á tölvu og beita þeim við gerð og miðlun lagnauppdrátta og annarra hönnunargagna
  • gera notendaleiðbeiningar fyrir lagnakerfi út frá uppdrætti og verklýsingu
  • gera efnisáætlun fyrir sérhæfð lagnakerfi og tækjaklefa