TEIK2PL04 - Teikningar og verklýsingar í pípulögnum 2

Undanfari : TEIK1PL04AB
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum þjálfast nemendur í lestri flóknari lagnauppdrátta og teikninga frárennsliskerfa og hreinlætistækja. Lögð er áhersla á hönnun vegna hljóðburðar, sniðmyndir, skurði og hlutamyndir af tengingu hreinlætistækja við lagnakerfi m.m. Farið er yfir hæðar- og málsetningar, efnisnotkun, einangrun lagna og brunavarnir með hliðsjón af reglum, reglugerðum og stöðlum og áfram er fjallað um verklýsingar og efnislista. Kennslan byggist að mestu á teikniverkefnum þar sem lögð er áhersla á að tengja saman forsendur hönnunar, lagnauppdrætti og verklýsingar.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnatriðum í uppbyggingu frárennsliskerfa og staðsetningu hreinlætistækja
  • ákvæðum byggingareglugerðar um fráveitulagnir
  • íslenskum stöðlum um frárennslislagnir í jörðu og fráveitulagnir húsa
  • stöðlum um mannvirkja- og tækniteikningar sem tengjast lagnauppdráttum
  • tæknilegum útfærslum frárennsliskerfa og staðsetningu hreinlætistækja
  • öllum gerðum uppdrátta og teiknitákna fyrir frárennsliskerfi og hreinlætistæki
  • fagheitum og efnisnotkun í lagnateikningum fyrir frárennsliskerfi


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota Rb-blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga
  • lesa og vinna með teikningar af frárennslislögnum og hreinlætistækjum
  • lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingar
  • gera efnisáætlun fyrir einfalt frárennsliskerfi


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • teikna hreinlætistæki og frárennsliskerfi í hús
  • beita teiknireglum við teiknun frárennsliskerfa og hreinlætistækja
  • gera fríhendisrissmyndir, flatar- og rúmteikningar af lagnakerfum
  • gera sniðmyndir, skurði og hlutamyndir af frárennsliskerfum og staðsetningu hreinlætistækja