TEIK2MÁ05 - Teikning - Málun
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í þessum grunnáfanga vinna nemendur á kerfisbundinn hátt með akrýl málningu ýmist á pappír eða striga. Lögð er áherla á að nemendur öðlist þekkingu á blöndunareiginleikum. Í litafræðinni kynnast nemendur grundvallaratriðum í meðferð lita þar sem þeir kanna samspil lita, virkni þeirra og áhrif. Í lokin vinna nemendur markvisst með fjölbreytta liti og litablöndun með það í huga að kanna möguleika sína á persónulegri tjáningu í málverki. Verkefni útskýrð og lögð fyrir. Einstök heimaverkefni. Skissubók – nemendur vinna sjálfstætt í skissubók heima og í tímum. Nemendur fari a.m.k. einu sinni á myndlistarsýningu og skila verkefni um sýninguna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- blöndun grunnlita í litatóna og hugtökum þar að lútandi
- að beita litum á fjölbreyttan hátt á ýmis konar efni
- tóni, blæ, ljósmagni og litablöndun
- nýtingu litaskalans á áhrifaríkan hátt í einföldum myndum
- greiningu áhrifa lita og litasamsetningar í mismunandi samhengi
- greiningu með vísan til táknfræði, á hvaða möguleg áhrif samsetning lita og forma getur haft
- kenningum/lögmálum litafræðinnar, litahringnum, andstæðum litum, heitum og köldum litum
- litgreiningu
- áhrifum ljóss og skugga á liti
- blæbriðgum litar
- einlit
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- blanda liti og ná fram mismunandi tónum
- nýta sér hin ýmsu efni til myndlistar
- leita sér heimilda og nýta sér þær
- beita lögmálum litafræðinnar við blöndun lita
- finna og greina liti í umhverfinu
- sjá andstæða liti í skuggum
- framkvæma tilraunir og setja þær fram á frambærilegan og persónulegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta blandað hvern þann lit sem hann finnur í umhverfi sínu
- nýta sér lögmál andstæðra lita; hvernig þeir vinna saman og hafa örvandi áhrif á virkni hver annars
- nýta áhrif litar á myndbyggingu og áhrif á rýmiskennd
- geta greint mismunandi litbrigði í einföldum lit