STÝR1VA04(AV) - Stýritækni loft- og vökastýringa

Undanfari : VÉLS1VA04(AV)
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum öðlast nemendur grunnþekkingu á loft-, og vökvastýrðum kerfum, meðhöndlun loftsins (raka, síun, hitastigi) og uppbyggingu vökva, helstu þáttum þeirra, hlutverki og notkunarsviði. Þeir þjálfast í stillingu þrýstings, notkun og stillingu tímaliða og hraða. Fjallað er um helstu atriði í uppbyggingu þrepastýrikerfa og raktar teikningar af stýrikerfum fyrir brunavélar. Nemendur fá undirstöðuþekkingu og skilning á hlutverki og notkun stýritækninnar, þannig að þeir verði færir um að þjónusta loft- og vökvastýrð kerfi, setja upp kerfi eftir teikningum og framkvæma einfaldar viðgerðir. Gerðar eru verklegar æfingar í uppbyggingu og notkun einfaldra loft- og vökvastýrikerfa. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • táknmyndum sem notaðar eru í teikningum samkvæmt ISO-staðli
  • samhengi flatar, þrýstings og krafts
  • loftþjöppum og vökvadælum, tjökkum, lokum og öðrum búnaði tengdum loft- og vökvakerfum
  • öryggisþáttum við meðhöndlun á lofti og vökva undir þrýstingi
  • hraðastillingum strokka og notkun tímaliða með stillanlegum rof- og tengitíma
  • áhvílandi stýrimerkjum
  • síum og hreinsibúnaði og helstu aðferðum við hreinsun á lögnum
  • helstu tegundum lagna, rörum, slöngum, festingum og tengjum
  • vökvum sem notaðir eru á vökvakerfi og eðliseiginleikum þeirra (seigju, seigjutölu) og umhverfisáhrifum vökva, förgun og endurvinnslu


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja upp og annast tengingar einfaldra stýrikerfa
  • útskýra virkni einfaldra stýrikerfa út frá teikningum
  • útskýra tengimyndir, starfsrit og stöðurit
  • lesa kerfisteikningar og nota handbækur
  • meta hvort uppgefnar stærðir á lögnum séu réttar
  • meta stærð vökvageymis og lagna að honum og frá


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • stjórna loft- og þrýstivökvakerfum á öruggan hátt
  • lofttæma lokað vökvakerfi
  • finna og lagfæra bilanir í loft- og þrýstivökvakerfum
  • gera tengimyndir af hálf- og alsjálfvirkum raðferlum strokka
  • meta orkutap í kerfum
  • gera starfsrit samkvæmt tengimyndum
  • nota handbækur