STAÞ2PL30 - Starfsþjálfun 2 - Pípulagnir
Undanfari : STAÞ2VD30
Í boði
: Haust
Lýsing
Áfanginn felur í sér starfsþjálfun á námssamningi þar sem nemandi beitir þeirri þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í náminu. Kröfur í starfsþjálfun aukast stig af stigi. Að loknu námi í skóla, starfsþjálfun og fullnægjandi útfylltri ferilbók er neminn tilbúinn í sveinspróf. Á 2. þrepi er dregið úr aðstoð en tilsögn meistara ætíð tiltæk. Sjálfstæði nemandans eykst síðan eftir því sem á námið líður. Á 2. þrepi þekkir nemandi vel til vinnustaðamenningar og verksviða fagsins. Hann öðlast aukna færni í að beita áhöldum og nota efni sem tilheyra faginu. Hann getur unnið með viðurkenndu verklagi samkvæmt öryggisreglum og fylgt hönnunargögnum með tilsögn. Í lok áfangans hefur hann náð færni til að hefja nám á 3. þrepi starfsþjálfunar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu verksviðum fagsins
- helstu öryggis- og umhverfisatriðum sem snerta fagið
- helstu gæðakröfum sem snerta fagið
- eiginleikum og möguleikum þeirra efna sem hann vinnur með innan fagsins
- áhöldum og tækjum sem tilheyra faginu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- fylgja hönnunargögnum með tilsögn
- vinna í samræmi við gildi og stefnu vinnustaðarins
- vinna með hliðsjón af gæðakröfum og viðurkenndu verklagi
- vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað
- beita fjölbreyttum aðferðum til að ná markmiðum í starfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita sjálfstæði í vinnubrögðum
- horfa á verk sitt gagnrýnum augum og bæta verklag með aðstoð meistara
- nota og sinna viðhaldi á áhöldum og tækjum
- beita sér rétt við vinnu
- sýna þjónustulund og góða umgengni og umhirðu á vinnustað