STAÞ2GB20 - Starfsþjálfun 3 - Rafvirkjun

Undanfari : STAÞ2GA20
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandi öðlist þekkingu á vali á rafbúnaði og geti sett og tengt húsveitur allt að 125 A. Nemandi geti með mælitækjum fundið bilanir í húsveitum. Hann læri að framfylgja kröfum viðskiptavina og geti sýnt leikni í samskiptum við þá. Nemandi geti veitt viðskiptavinum nauðsynlega ráðgjöf um val og staðsetningu rafbúnaðar.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • vali á búnaði í töfluskáp í húsveitur fyrir allt að 125 A
  • röðun varnaráðstafana í húsveitum
  • vali á stærð varbúnaðar og vírsverleka út frá straumálagi
  • gildi varnaráðstafana er varðar snerti- og brunahættu


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • velja og setja upp búnað með fagmannlegum hætti
  • tjá sig um fagleg viðfangsefni
  • sýna samstarfsvilja og hjálpsemi á vinnustað
  • setja sig inn í aðstæður á hverjum stað og hvernig best sé að standa að verki
  • beita mælitækjum við bilanaleit á raflögnum og rafbúnaði


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja búnað og töfluskáp í húsveitum fyrir allt að 125 A
  • geta gert sér grein fyrir heppilegri staðsetningu rafdreifiskápa að teknu tilliti til bestu lagnaleiða
  • ákvarða röðun búnaðar í aðaltöflu
  • gera sér grein fyrir röð varnarráðstafana í húsveitum
  • velja vírsverleika lagna út frá álagi
  • velja rétta stærð varbúnaðar
  • sjá gildi varnarráðstafana er varða snerti- og brunahættu