STAR1VV05 - Starfsnám - Með áherslu á verndaða vinnustaði (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í þessum áfanga fá nemendur tækifæri til að kynna sér verndaða vinnustaði. Nemendur fá tækifæri til að fara í starfsnám sem verður skipulagt í samráði við vinnuveitendur og hefur kennari eða annar starfsmaður skólans umsjón með starfsnáminu. Nemendur vinna eftir vinnulistum sem taka mið af aðstæðum hverju sinni.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • vernduðum vinnustöðum
  • undirstöðuþáttum á vernduðum vinnustöðum
  • þeim áhöldum, tækjum og tólum sem ætlast er til að viðkomandi nýti sér eða meðhöndli á vinnustað
  • hættum sem geta verið í starfsumhverfinu

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • mæta til vinnu á réttum tíma
  • vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn
  • fylgja fyrirmælum
  • fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
  • fylgja samskiptareglum á vinnustað

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í atvinnulífinu
  • biðja um aðstoð ef þess þarf
  • tilheyra starfsmannahópi

Áfangi á starfsbraut