STAR1VF05 - Starfsnám - Með áherslu á vettvangsferðir (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Námið er að hluta til bóklegt nám og að hluta til fer námið fram í vettvangsferðum. Farið verður yfir samskiptareglur, öryggis og umhverfismál, réttindi og skyldur og hættur í umhverfinu. Í vettvangsferðum kynnast nemendur helstu atvinnutækifærum í umhverfinu og þeim möguleikum sem þau bjóða upp á m.t.t. atvinnuþátttöku.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum vinnustöðum í nærumhverfinu
- tilgangi starfs og mikilvægi þess í tengslum við önnur störf
- viðeigandi framkomu í vettvangsferðum
- hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að fara í vettvangsferðir og kynna sér sérsvið hvers staðar
- sækja sér upplýsingar um nýja og framandi vinnustaði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- þekkja mismunandi vettvangsstaði og átta sig á hlutverkum þeirra
- mikilvægi þess að mæta stundvíslega
- fara í vettvangsferðir út frá námslegum markmiðum
Áfangi á starfsbraut