STAR1ST05 - Starfsnám - Með áherslu á byrjun starfsferils (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í áfanganum kynnast nemendur helstu atvinnufyrirtækjum í nærsamfélaginu og þeim möguleikum sem þau bjóða upp á með tilliti til atvinnuþátttöku. Nemendur fá kynningu á helstu reglum (skrifuðum sem óskrifuðum) sem gilda á vinnustöðum og farið verður yfir almenn samskipti á vinnustað. Nemendur fá fræðslu um réttindi og skyldur starfsmanna á almennum vinnumarkaði og farið verður yfir almenna öryggis- og hollustuhætti á vinnustöðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- atvinnutækifærum og fyrirtækjum í nærsamfélaginu
- þeim atriðum sem taka ber tillit til við starfsval
- tilgangi starfa og mikilvægi þeirra í tengslum við önnur störf
- eigin styrkleikum og mikilvægi góðra samskipta
- reglum, öryggi og hollustuháttum á almennum vinnustöðum
- réttindum og skyldum launþega
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- flokka atvinnufyrirtæki eftir eðli þeirra
- meta eigin kunnáttu og reynslu með tilliti til starfsvals
- bera ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum, t.d. að mæta á réttum tíma til vinnu
- taka þátt í samræðum, bera virðingu fyrir skoðunum annarra og sýna umburðarlyndi
- þekkja réttindi sín og skyldur sem launþegi
- meta hættur í vinnuumhverfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í atvinnulífinu
- velja sér starfsvettvang
- vera ábyrgur starfsmaður
- gera sér grein fyrir samhengi milli atvinnugreina
- vera hæfur til samvinnu
- nýta sér hlífðarbúnað og hjálpartæki á vinnustað og forðast hættur
Áfangi á starfsbraut