STAR1SS05 - Starfsnám - Með áherslu á sköpun í skóla (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á efla verklag nemenda í ýmsum verkefnum sem þeir hafa áhuga á að vinna. Áfanginn er hugsaður sem undirbúningsáfangi fyrir þátttöku úti á vinnumarkaðinum eða til að mæta áhuga og hæfni nemenda í skapandi vinnubrögðum.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi skipulags þegar verkefni eru unnin
  • að þjálfun og undirbúningur er mikilvægur áður en farið er út á vettvang
  • sköpun er ferli sem leiðir mann oft á framandi staði
  • að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
  • að hægt er að nálgast viðfangsefnið á skapandi hátt

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita mismunandi verklagi
  • vinna eftir skipulagi
  • láta hæfileika sína njóta sín
  • átta sig á atvinnuskapandi tækifærum í nærumhverfinu

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna verkefni sjálfstætt eða eftir fyrirmælum
  • hafa trú á eigin færni og sjálfstraust til þess að takast á við ný verkefni

Áfangi á starfsbraut