STAR1OG05 - Starfsnám - Með áherslu á störf í opinbera geiranum (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í áfanganum er áhersla lögð á að nemendur öðlist þá þekkingu og færni sem þeir þurfa til að geta tekist á við störf á opinberum stofnunum þar sem unnið er með börn, fullorðna einstaklinga og fólk á öllum aldri með fötlun. Nemendur læra um þroska barna á leik- og grunnskólaaldri og merkingu helstu hugtaka innan uppeldisfræðinnar. Fjallað verður um hvað einkennir starf með mismunandi aldurshópum og á mismunandi þroskaskeiðum. Fjallað verður um hugtakið uppeldi fyrir alla og gildi þess fyrir einstaklinginn og samfélagið. Nemendur læra um mikilvægi þess að efla sjálfstraust og færni í samskiptum almennt. Þeir kynnast hvaða breytingar verða hjá einstaklingum með auknum þroska og hækkandi aldri og fjallað verður um ýmis atriði í tengslum við það, sem og um fötlun, öldrun og mismunandi vinnu með öllum þessum hópum. Skoðuð eru markmið leik- og grunnskóla í opinberum lögum auk þeirra laga og reglugerða sem við eiga hverju sinni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mismunandi störfum sem tengjast fræðslu og umönnun
- mismunandi þroskaskeiðum og þroskaþáttum
- þörfum mismunandi hópa varðandi fræðslu og umönnun
- mikilvægi þess að öðlast færni í samskiptum og samstarfi
- margbreytileika mannlífsins á öllum aldursskeiðum
- mikilvægi þess að allir njóti jafnréttis og búi við lýðræði
- mikilvægi heilbrigðis og velferðar fyrir þá hópa sem þeir vinna með hverju sinni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja mismunandi þarfir einstaklinga
- meta eigin færni og styrk til að vinna með öðrum
- taka þátt í samræðum og umgangast mismunandi hópa fólks
- beita aðferðum uppeldisfræðinnar
- nota þekkingu sína í starfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta unnið með mismunandi hópum fólks
- hvetja einstaklinga til sjálfshjálpar
- aðstoða einstaklinga til sjálfshjálpar
- beita gangrýnni og skapandi hugsun
- taka þátt í samræðum við mismunandi hópa
Áfangi á starfsbraut