STAF3ÞJ27 - Starfsþjálfun sjúkraliðanema
Undanfari : VINN2LS08, VINN3GH08 og VINN3ÖH08
Í boði
: Haust
Lýsing
Starfsþjálfun sjúkraliðanema er áfangi með námslokum á 3. þrepi og er 27 einingar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- faglegum grunni hjúkrunarstarfa
- mikilvægi samskipta og samvinnu í störfum sjúkraliða
- vinnuumhverfi og starfssviði sjúkraliða
- siðareglum sjúkraliða
- lögum og reglugerðum sem tengjast störfum sjúkraliða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita faglegum vinnubrögðum í sjúkraliðastarfinu
- nýta samskiptahæfni við margvíslegar aðstæður
- taka þátt í þverfaglegu samstarfi
- starfa eftir siðareglum, sýna siðferðisvitund, fordómaleysi, umburðarlyndi og víðsýni í störfum sínum
- vinna eftir gæðaviðmiðum heilbrigðisstofnana
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- yfirfæra og samþætta fræðilega þekkingu að sjúkraliðastarfinu
- beita innsæi, gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn hjúkrunarviðfangsefna
- vera fær um að vinna sjálfstætt og bregðast við margvíslegum aðstæðum í sjúkraliðastarfinu
- beita, rökstyðja og ígrunda þær hjúkrunarmeðferðir sem hann framkvæmir samkvæmt hjúkrunaráætlun hverju sinni
- sýna hæfni í samskiptum við ólíka einstaklinga með ólíkar þarfir
- tileinka sér nýjungar og þróa sig í starfi