STÆR3HI05 - Stærðfræði - Heildun og diffurjöfnur

Undanfari : STÆR3DF05
Í boði : Alltaf

Lýsing

Byrjað er á að rifja upp diffrun og línulega nálgun í punkti. Unnið með stofnföll falla, aðferðir svo sem innsetningaraðferð, hlutheildun og liðun í stofnbrot. Óákveðið og ákveðið heildi er fundið. Rúmmál snúða og diffurjöfnur af fyrsta stigi teknar fyrir og þrepasannanir æfðar

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • tengslum diffrunar og heildunarstofnföllum falla og heildunar
  • helstu reglum um ákveðið og óákveðið heildi
  • ýmsum aðferðum til að finna heildi, s.s. innsetningu, hlutheildun og liðun í stofnbrot
  • deildajöfnum af fyrsta stigi
  • þrepasönnunum

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • finna stofnföll
  • heilda með aðferðum eins og innsetningu, hlutheildun og liðun í stofnbrot
  • beita reglum um ákveðið heildi til að finna flatarmál og rúmmál
  • nota fyrsta stigs deildajöfnur til að leysa hagnýt dæmi
  • sanna tilgátur með þrepun
  • beita hjálpartækjum og forritum við lausn stærðfræðilegra viðfangsefna

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta skráð lausnir sínar skipulega og skilmerkilega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt
  • beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum og geta útskýrt aðferðir sínar
  • gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
  • beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
  • fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi
  • hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu sína til ákvarðanatöku í sérhæfðum verkefnum
  • takast á við stærðfræðileg verkefni þar sem nota þarf ólíkar aðferðir samtímis eða hverja á eftir annarri