STÆR2AH05 - Stærðfræði - Algebra og hornaföll
Undanfari : Nemandi hafi lokið stærðfræði með hæfnieinkunn B+ úr grunnskóla eða hafi lokið STÆR2AR05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Meginefni áfangans er algebra, föll og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: bókstafareikningur, veldi og rætur, jöfnur af öðru stigi, könnun annars stigs ferla (fleygboga) í hnitakerfi, meðferð algebrubrota margliðudeiling, ójöfnur af fyrsta og öðru stigi og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi. Föll: fallhugtakið er innleitt og nokkur algeng föll kynnt.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- undirstöðureglum talna og bókstafareiknings
- þáttun, brotum og brotabrotum
- grunnhugtökum mengjafræði
- jöfnum og ójöfnum
- rótum, ræðum veldum og tölugildum
- hnitakerfinu, jöfnu beinnar línu og fleygboga
- hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi og einslögun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota einfaldan mengjareikning
- nota veldi og rætur, helstu veldareglur og vinna með brotna veldisvísa
- lengja, stytta, deila, margfalda og leggja saman algebrubrot
- finna núllstöðvar, samhverfás og útgildi fleygboga, teikna þá í hnitakerfi og finna skurðpunkta þeirra við beinar línur og aðra fleygboga
- leysa annars stigs jöfnur
- leysa ójöfnur af fyrsta og öðru stigi, m.a með hjálp formerkjatöflu
- deila með margliðudeilingu og nota hana til að þátta margliður
- vinna með fallhugtakið
- vinna með einslögun og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- setja upp margskonar verkefni með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
- skrá lausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum um þær við aðra
- átta sig á tengslum aðferða við framsetningu
- beita frumkvæði, innsæi og frumleika við lausn verkefna