STÆR1SF05 - Stærðfræði - Stærðfræði (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Unnið er með talnaskilning og undirstöðuatriði í almennum reikningi. Farið er í prósentur og hlutföll: Unnið er með hugtakið prósenta og léttur prósentureikningur er æfður. Að lokum er farið í tölfræði og unnið með talnasöfn, töflur og myndrit.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu heilla talna
- notkun sviga og röð aðgerða
- frumþáttun náttúrlegra talna
- að prósenta er hluti af hundraði
- einföldum prósentureikningi
- tíðnitöflu og myndritum
- meðaltali, miðgildi og tíðasta gildi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna í huganum
- reikna dæmi með svigum og nota reglu um röð aðgerða
- nota veldi
- frumþátta tölur
- finna hluta, heild og prósentu
- hækka og lækka tölu um ákveðna prósentu
- vinna með talnasafn og búa til tíðnitöflu
- setja upp súlurit, stöplarit og línurit
- finna meðaltal, miðgildi og tíðasta gildi talnasafna
- lesa upplýsingar út úr myndritum og töflum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega
- skiptast á skoðunum sínum við aðra um lausnir sínar og útskýra fyrir öðrum
- átta sig á tengslum ólíkra aðverða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu til notkunar í áframhaldandi námi
- takast á við stærðfræðileg verkefni í daglegu lífi með opnum og jákvæðum huga
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu til notkunar í áframhaldandi námi
- takast á við stærðfræðileg verkefni í daglegu lífi með opnum og jákvæðum huga
Áfangi á starfsbraut