STÆR1FB05 - Stærðfræði - Fornám B
Undanfari : STÆR1FA05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í áfanganum er farið í einfalda algebru og léttar jöfnur. Unnið er með léttar stæður og jöfnur. Farið verður í rúmfræði og unnið með flatarmál, ummál og rúmmál einfaldra flata og strendinga. Breytingar á milli eininga í SI kerfinu. Að lokum er farið í pýþagróarsareglu og ferningsrót.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- undirstöðuatriðum í algebru og jöfnureikningi
- hugtökunum; flatarmál, rúmmál, ummál og yfirborð
- metrakerfinu
- hugtökunum; hringur, radíus, þvermál og ummál hrings
- Pýþagórasarreglunni og notkun hennar
- hornasummu þríhyrnings, topphorni, grannhorni og hornum við samsíða línur
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- einfalda stæður og leysa léttar jöfnur
- margfalda inn í sviga og taka út fyrir sviga
- einangra bókstaf út úr þriggja stafa bókstafajöfnu
- reikna flatarmál og ummál þríhyrninga og ferhyrninga
- reikna rúmmál og yfirborð ferstrendinga
- breyta á milli eininga í SI-kerfinu
- vinna með Pýþagrosarreglu
- nota hornasummu þríhyrnings til að finna horn
- nota reglur um topphorn, grannhorn og horn við samsíða línur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu til notkunar í áframhaldandi námi
- takast á við stærðfræðileg verkefni í daglegu lífi með opnum og jákvæðum huga