Lýsing
Megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur eru þjálfaðir í lestri, hlustun, tali og ritun. Einföld málfræðiatriði eru kynnt og útskýrð. Áhersla lögð á uppbyggingu orðaforða og viðeigandi málsnið. Umfjöllun um Spán, spænska menningu og spænskumælandi málsvæði. Efni á netinu kynnt og ýmis konar annað ítarefni, s.s. tónlist og myndefni
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim orðaforða sem þarf til að geta lesið, hlustað á, skilið og rætt um einföldustu atriði
- helstu grundvallarþáttum spænsk málkerfis, s.s. framburði, tónfalli og einfaldri setningaskipan
- einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli og helstu grundvallarþáttum spænsks málkerfis, s.s. framburði, tónfalli og einfaldri setningaskipan
- Spáni og spænskumælandi málsvæðum, ásamt einstökum þáttum menningar spænskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
- geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið kveðjur og kurteisisávörp
- lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengjast nemandanum, fjölskyldu, umhverfi, áhugamálum og daglegu lífi
- segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu, umhverfi og áhugamálum
- geta ritað stutta, einfalda texta í nútíð
- taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og beita málsniði við hæfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja talað mál um kunnuglegt efni ef talað er hægt og skýrt
- taka þátt í einföldum samræðum og nota viðeigandi málsnið
- kynna sjálfan sig á einfaldan hátt
- rita stutta, einfalda texta um kunnuglegt efni