SOGT2PL03 - Stýringar og tæknibúnaður 1
Undanfari : Enginn
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum læra nemendur grunnatriði rafmagnsfræðinnar með áherslu á helstu hugtök og mælingar á straumi, spennu og mótstöðu í einföldum lagnabúnaði. Í framhaldi af því er fjallað um helsta búnað sem þarf að vera í tækjaklefa til tengingar og stýringar á hita- og neysluvatnskerfum og uppsetningu. Má þar nefna þrýstiminnkara, þrýstijafnara, slaufuloka, hvar nauðsynlegt er að geta lesið hita og þrýsting, öryggisloka og þensluker.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnatriðum rafmagnsfræðinnar og uppbyggingu rafkerfa í byggingum
- helstu teiknitáknum sem notuð eru í rafmagnsfræði
- hvenær kalla þarf til rafvirkja og/eða rafeindavirkja
- öryggisreglum og öryggisbúnaði sem tengist rafmagni
- búnaði tækjaklefa fyrir hita- og neysluvatnskerfi
- öryggisbúnaði vegna yfirþrýstings og ofhitnunar og búnaði til að stýra þrýstingi
- samhenginu milli þrýstings, flæðis og stærðar loka
- tæknilegum tengiskilmálum viðkomandi veitna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- mæla straum, spennu og mótstöðu í einföldum búnaði
- beita mælitækjum til að mæla virkni í búnaði lagnakerfa
- framkvæma einfaldar tengingar á rafmagnsknúnum lagnabúnaði
- nota mismunandi gerðir af mælum fyrir hita og þrýsting, rennslismæla og dælur fyrir vatn og aðra vökva
- nota helstu gerðir af lokum í lagnakerfum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- setja upp og tengja tæknilegan búnað lagnakerfa
- setja upp loka og dælur af mismunandi gerðum
- gangsetja hita- og neysluvatnskerfi á öruggan hátt
- vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað