SMÍÐ2VB04(CV) - Málmsmíðar 3 - Sjálfstætt smíðaverkefni
Undanfari : ?IÐTE2VB04(BV), MLSU2VB03(BV), RENN2VB03(AV) og SMÍÐ1VB04(BV)
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemandinn velur verkefni í samráði við kennara og gerir vinnuteikningar og smíðar hluti eða búnað með nákvæmni sem krafist er almennt við smíði vélbúnaðar. Beitt er aðferðum þar sem krafist er kunnáttu og færni í rafsuðu og rennismíði og beitingu handverkfæra, smíðavéla og tækja. Að auki er dýpkuð þekking nemenda á spennum af völdum álags á málmhluti af algengri lögun. Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautarlýsingunni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- teikningum og hlutateikningum smíðis
- fjölbreyttum smíðaaðferðum, val á efni og frágangi smíðis
- málmsuðu, lóðningum og suðustellingum
- mikilvægi staðla og gagna varðandi álag og þolmörk málma
- spennum af völdum álags á málmhluti af algengri lögun, s.s. snúnings-, beygju-, högg-, varma- eða þrýstiálag á öxla, plötur, hringi, tannhjól og gorma
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita margvíslegum tækjum og búnaði við smíði og vinnslu á málmum
- nota teikniforrit til að útfæra vinnuteikningar og gera breytingar á teikningum
- sneiða hjá því að skapa of spennuhátt ástand í smíðisgripum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna sjálfstætt og gera grein fyrir verkefninu og framkvæmd þess
- taka sjálfstæðar ákvarðanir um verklag og setja upp verkferla
- geta rökstutt val á aðferðum, efnum, áhöldum og tækjum
- gera efnislista byggðan á útfærðum teikningum