SMÍÐ1VA04(AV) - Málmsmíði 1 - Handavinna, grunnur
Undanfari : ?Óákveðið
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur skulu öðlast þjálfun í notkun og meðferð verkfæra og verkstæðisbúnaðar, fá tilfinningu fyrir nákvæmni mælitækja, notkunarsviði þeirra og takmörkunum. Nemendur fái þjálfun í smíði eftir teikningum og þekkingu til að velja smíðamálma og meðhöndla þá á réttan hátt við vinnu sína. Einnig þjálfist þeir í að beita helstu verkfærum og vinnuaðferðum við málmsmíðar, svo sem að saga, slípa, sverfa, bora, snitta og nota snitt og snúningshraðatöflur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á eftirfarandi:
- almennum skilgreiningum á járni, stáli, járnsteypu, riðfríu stáli, áli og öðrum málmum
- notkunarsviði, umhirðu og viðhaldi handverkfæra og tækja sem notuð eru til viðhalds og viðgerða á vélbúnaði
- helstu mælitækjum sem notuð eru í málmiðnaði til beinna og óbeinna mælinga
- uppbyggingu og notkun spóntökuvéla
- helstu aðferðum og verkfærum við járnsmíðar
- vinnsluhæfni smíðastáls, áls og riðfrís stáls
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með handverkfærum og málmsmíðavélum
- vinna eftir einföldum teikningum, smíða hluti sem standast öll mál
- meta og velja efni sem hentar til smíði hverju sinni
- beita mælitækjum, svo sem rennimáli
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja öryggisbúnað sem hentar verkefnum og aðstæðum hverju sinni
- lesa sig til um eiginleika málma úr efnis stöðlum
- velja málmtegundir eftir stöðlum og ákveða hvaða efni hentar best fyrir mismunandi aðstæður
- segja til um helstu möguleika og helstu eiginleika málma
- velja samsetningaaðferðir (lóðun, suða, boltun og líming)
- velja tæki og búnað sem hentar mismunandi smíðaefnum