SMFÉ1SN03 - Samfélagsfræði - Með áherslu á Suðurnes (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með Suðurnesin í víðu samhengi þar sem skoðaðir verða nokkrir sameiginlegir þættir sveitafélaganna á Suðurnesjum ásamt því að skoða hvað gerir þau ólík.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • nöfnum bæjarfélaga á Suðurnesjum
  • fjölda íbúa á hverjum stað
  • helstu kennileitum bæjarfélaganna
  • helstu ferðamannastöðum á Suðurnesjum

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja sig í spor ferðamanns og ferðast á hina ýmsu staði
  • nefna og aðgreina bæjarfélög á Suðurnesjum
  • leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
  • nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
  • að beita mismunandi aðferðum í vinnuferlinu

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tala um og/eða ferðast um Suðurnesin
  • taka eftir ólíkum viðfangsefnum
  • greina á milli aðal- og aukaatriða
  • hlustað á sjónarmið annarra af víðsýni
  • lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu
  • tjá eigin skoðanir

Áfangi á starfsbraut