SMFÉ1EV03 - Samfélagsfræði - Með áherslu á Evrópu (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með Evrópulöndin þar sem rætt verður um helstu borgir og sérkenni þeirra. Fyrir áhugasama er hægt að nýta sér Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva í þeim tilgangi að nálgast viðfangsefnið út frá tónlist.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • löndum sem tilheyra Evrópu
  • nöfnum höfuðborga í Evrópu
  • helstu kennileitum í Evrópu
  • vinsælum ferðamannastöðum í Evrópu

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina á milli landa sem tilheyra Evrópu
  • geita mismunandi leiða í vinnuferlinu
  • nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í umræðum um Evrópulöndin
  • gesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu

Áfangi á starfsbraut