SKNÁ1UM03 - Skynnám - Með áherslu á umhverfið (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Tekið er fyrir afmarkað efni í hverjum tíma. Byrjað er að fjalla um efnið á sjónrænan og heyrnrænan hátt. Viðfangsefnið er svo skoðað og handfjatlað.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ólíkum efnum úr náttúru Íslands
  • áferð efna úr umhverfinu

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að greina á milli ólíkra efna
  • að greina á milli ólíkrar áferðar
  • að upplifa með sinni skynjum áferð og efni

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hafa upplifað ólík efni og áferð
  • vera betur tilbúinn til að taka á móti skynörvun í sem víðustu samhengi

Áfangi á starfsbraut