SJÚK2GH05 - Sjúkdómafræði 2

Undanfari : SJÚK2MS05
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum er fjallað um líkamlega og geðræna sjúkdóma og latneskt nafngiftakerfi sjúkdóma. Fjallað er um hugtök og sjúkdóma sem tengjast innkirtlakerfinu, hjarta-og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi. Áhættuþættir, einkenni, orsakir, afleiðingar og meðferðamöguleikar algengra sjúkdóma í fyrrnefndum líkamskerfum eru teknir til umfjöllunar. Algengum geðröskunum eru gerð skil og fjallað um forvarnir, einkenni og meðferð geðraskana. Skoðuð eru tengsl umhverfis, erfða og áhættuþátta við sjúkdómsþróun þar sem við á. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • algengum fræðilegum hugtökum sem tengjast efni áfangans
  • mikilvægi samvægis fyrir heilbrigði líkamans
  • þróun sjúklegra breytinga í líkama
  • viðbrögðum frumna, vefja, líffæra, líffærakerfa við álagi og samvægistruflunum
  • algengum sýkingum í mannslíkama og einkennum þeirra
  • samspili umhverfis-og erfðaþátta í sjúkdómsþróun
  • flokkun, hegðun og frumorsökum æxlisvaxtar
  • áhættuþáttum, einkennum, orsökum, afleiðingum og meðferðarmöguleikum algengra sjúkdóma í þekjukerfi, stoð- og taugakerfi, sjúkdóma í innkirtlum, hjarta-og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag-og æxlunarkerfi einkennum, orsökum, forvörnum og meðferðarmöguleikum algengra geðraskana
  • fjölbreyttum miðlum til þess að viðhalda og þróa þekkingu sína í sjúkdóma-og meinafræði
  • latneskum nafngiftum í meinafræði og sjúkdómafræði


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota algeng fræðileg hugtök sem tengjast efni áfangans
  • gera grein fyrir meingerðum, einkennum, orsökum, afleiðingum, forvörnum og meðferðarmöguleikum algengra sjúkdóma í þekjukerfi, stoð- og taugakerfi, innkirtlum, hjarta-og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi
  • bera saman einkenni, orsakir, forvarnir og meðferðarmöguleika algengra geðraskana
  • benda á tengsl sjúkdómsþróunar og truflana á samvægisferlum í líkama
  • benda á tengsl sjúkdóma við umhverfis-og erfðaþætti
  • nota fjölbreytta miðla til þess að viðhalda og þróa þekkingu sína í sjúkdómafræði


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • útskýra meingerð, einkenni, orsakir, afleiðingar, forvarnir og meðferðarmöguleika algengra
  • sjúkdóma í þekjukerfi, stoð- og taugakerfi, innkirtlum, hjarta-og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi
  • rekjatengslsjúkdóma og umhverfis-ogerfðaþátta, þarsemvið á
  • miðlaþekkinguumsjúkdóma í innkirtlakerfi, hjarta-ogæðakerfi, öndunarfærum,meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfiaukgeðraskana á fjölbreyttan og skapandihátt
  • berakennsl á algengeinkennisjúkdóma og/eðafrávikfráeðlileguástandi
  • tengjasjúkdómseinkenni og sjúkdómsástand
  • yfirfæra og nýtaþekkingu í sjúkdómafræði í starfi