SJÁL2ÍH01 - Sjálfboðaliðastörf innan íþróttahreyfingar

Undanfari : Enginn
Í boði : Haust

Lýsing

Markmið þessa áfanga er að kynna nemendum fyrir sjálfboðaliðastörfum innan íþróttahreyfingarinnar og mikilvægi þeirra í samstarfi við Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB) og Íþróttabandalag Suðurnesja (ÍS). Það að sinna sjálfboðaliðastarfi hefur í för með sér ýmsan ávinning, markmiðið er að nemendur sem sitja þennan áfanga upplifi þann ávinning á eigin skinni. Einstaklingar sem sinna sjálfboðaliðastarfi lýsa því að þátttaka þeirra hafi veitt þeim aukið sjálfstraust, bætt félagshæfni, kennt þeim að starfa í hópavinnu og þau hlotið fjölbreytta reynslu á ýmsum sviðum sem nýtist þeim til framtíðar. Auk þess fylgir almennt ánægja og vellíðan af því að vera í félagsskap og félagsstarfi með fjölbreyttum hópi fólks. Samfélagslega séð sýna sjálfboðaliðar virkni með því að ljá rödd sína, hjálpa fólki og vinna að umbótum auk þess að öðlast aukna innsýn inn í samfélagið og málefni sem starfið lýtur að. Þau gildi sem helst ráða því að fólk kýs að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi eru samkennd, réttlætistilfinning, hjálpsemi og ábyrgð.

Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur og munu nemendur m.a. kynnast stjórnskipulagi íþróttahreyfingarinnar og rekstri, skyldum og ábyrgð stjórnarfólks og þeim fjölbreyttu störfum sem sjálfboðaliðar inna af hendi innan íþróttahreyfingarinnar á degi hverjum.

Áfanginn fer fram innan og utan hefðbundinnar stundaskrár, þ.e. fyrirlestrar og fræðsla fara fram á skólatíma og nemendur vinna verklegan þátt áfangans á þeim tíma sem hentar þeim og verkefninu í samstarfi við íþróttafélög.

 

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi þess að leggja sitt af mörkum til samfélagsins
  • fá innsýn inn í starf og rekstur íþróttafélaga
  • reynsla sem nýtist til framtíðar

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • efla félagsþroska sinn
  • sinna ábyrgðarstarfi
  • vinna eftir verklagsreglum
  • vinna í hópi
  • sjálfstæðum vinnubrögðum
  • aðlaga sig að ólíkum aðstæðum

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • efla tengsl við íþróttahreyfinguna
  • vinna sjálfstætt sem og með öðrum í hópastarfi
  • takast á við fjölbreytt verkefni
  • öðlast reynslu sem nýtist til framtíðar