SÉLA2PL03 - Sérhæfð lagnakerfi 1
Undanfari : Enginn
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum er farið yfir ýmis sérhæfð lagnakerfi sem eru mikilvægur hluti af verksviði pípulagningamanna. Fjallað er um snjóbræðslu- og vatnsúðakerfi, hreinsi- og hitakerfi fyrir sundlaugar, lífræn hreinlætiskerfi og rotþrær. Lögð er áhersla á að nemendur læri um uppbyggingu þessara kerfa, sérkenni þeirra, lagnaefni, dælu- og stjórnbúnað.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- snjóbræðslukerfum og lagnaefni og búnaði fyrir þau
- grunnreglum fyrir lögn og tengingu
- stýringum og reglun fyrir snjóbræðslukerfi
- notkun millihitara og frostlagar á snjóbræðslukerfi
- vatnsúðakerfum til brunavarna
- virkni loftþjappa, lögn þrýstiloftsleiðslna og öryggiskröfum í vatnsúðakerfum
- grunnatriðum í hreinlætis- og hitakerfum sundlauga
- lífrænum fráveitukerfum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja lagnaefni og búnað fyrir snjóbræðslukerfi
- útfæra lagnir snjóbræðslukerfa í gamlar og nýjar tröppur
- meta undirlag og þekingarefni fyrir snjóbræðslulagnir og kanna hæðarlegu
- leggja vatnsúðakerfi, setja upp og tengja tilheyrandi stjórntæki
- setja upp lífræn salerni og rotþrær
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leggja snjóbræðslukerfi við mismunandi aðstæður og skilyrði
- vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað
- tengja loftþjöppur, leggja loftþrýstilagnir og setja upp nauðsynleg stjórn- og öryggistæki í vatnsúðakerfum
- leggja hreinsilagnir og setja upp tilheyrandi búnað fyrir sundlaugar og gangsetja kerfin
- setja upp og tengja lífræn salerni og rotþrær