SÁLF3SM05 - Sálfræði - Afbrigðasálfræði og streita
Undanfari : SÁLF2HS05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Fjallað verður um geðraskanir, svo sem kvíða, þunglyndi, geðklofa, átraskanir og fíkn. Farið í helstu kenningar um orsakir þeirra. Einnig er fjallað um streitu og leiðir til að takast á við hana. Helstu meðferðarform verða tekin fyrir og nemendur prófa hvernig fást má við neikvæðar hugsanir og auka jákvæðar hugsanir. Nemendur vinna heimildarverkefni tengt geðröskunum og þurfa þar að afla heimilda m.a. frá ritrýndum fræðigreinum á ensku. Meginmarkmið áfangans er að nemendur auki þekkingu sína og skilning á geðheilsu og læri að afla sér frekari heimilda á fræðilegan hátt
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- geðheilsu og helstu geðröskunum
- helstu hugtökum, kenningum og meðferðarformum varðandi geðraskanir
- áhrifum eigin hugsana á tilfinningar og upplifanir
- helstu orsökum og afleiðingum streitu, og aðferðum til að draga úr streitu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa sér til gagns í erlendum og íslenskum fræðiritum
- koma þekkingu sinni á framfæri í ræðu og riti
- fjalla um og bera saman sálfræðileg hugtök og kenningar
- greina helstu flokka geðraskana (sem hafa dæmigerð einkenni fyrir röskunina)
- nota heimildir á viðurkenndan hátt
- beita streitulosandi aðferðum og þjálfa jákvæðan hugsunarhátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
- geta tekið þátt í umræðum um sálfræðileg málefni
- afla sér upplýsinga á sjálfstæðan hátt, bæði úr íslenskum og erlendum heimildum
- tileinka sér fordómalaus viðhorf
- geta unnið í samvinnu við aðra
- geta tekið ábyrgð á eigin námi og beitt öguðum vinnubrögðum
- gera sér grein fyrir hvernig má stuðla að eigin geðheilbrigði