SAGA3SE05 - Saga - Evrópusaga

Undanfari : Grunnáfangi í sögu á 2. þrepi
Í boði : Alltaf

Lýsing

Miðaldir eru tímabil í sögu Evrópu, sem ná frá falli Rómaveldis eða um 476 e. Kr. til um 1800 e. Kr. Lok miðalda eru oft miðuð við upphaf endurreisnar stefnunnar í listum, eða við fund Kristófers Kólumbusar á Ameríku 1492. Miðaldir voru erfiðir tímar í Evrópusögunni og eru oft kallaðar ​hinar myrku miðaldir ​ , t.d. vegna svartadauða, vegna hnignunar verslunar og samgangna, ásamt hægri þróun lista (t.d. málaralistar og tónlistar).
Miðaldöldum er stundum skipt í:

  • Ármiðaldir (frá falli Vestrómverska ríkisins ​476​ til upphafs hámiðalda)
  • Hámiðaldir (frá lokum Víkingaaldar 1066 til upphafs síðmiðalda)
  • Síðmiðaldir (frá upphafi ítölsku endurreisnarinnar til upphafs nýaldar sem getur verið frá 1447 til 1545)


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • sögu ármiðalda og upphaf kristinnar kirkju
  • landbúnað miðalda og lénskerfið
  • sögu býsansríkisins
  • sögu og rætur Islam
  • sögur hámiðalda s.s. konungsríkja og krossferða
  • sögu upphafs borga, verslunar og lærdóms á miðöldum
  • sögu síðmiðalda s.s. kreppunnar og plágunnar miklu

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • færa rök fyrir máli sínu
  • vinna með heimildir
  • skrifa fræðilega texta
  • geta lýst aðstæðum á tilteknum tíma og rakið atburðarás í stórum dráttum
  • kynna ákveðið viðfangsefni sem byggir á ítarlegri heimildaöflun
  • skýra helstu viðburði tímabilsins
  • gera greinarmun á staðreynd og túlkun
  • draga sjálfur ályktanir
  • geta beitt gagnrýnni hugsun við rannsókn á mismunandi viðfangsefni
  • flytja af nokkru öryggi endursagnir, kynningar og lýsingar á tilteknum málefnum

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • kynna fræðilegt efni á viðeigandi hátt
  • færa rök fyrir niðurstöðum
  • gera sér grein fyrir orsakir og afleiðingar